Mótmæli á Íslandi....

...virðast eiga undir högg að sækja. Þau eru talin hallærisleg leið til að koma skoðunum sínum á framfæri og stjórnvöld virðist ekki ætla að taka þau gild nema öruggur meirihluti landsmanna mæti á mótmælafund. Það þarf semsagt 160.001 mann á Austurvöll eða í Háskólabíó (!) til að mótmæli teljist gild. Þó eru einhverjir sem myndu þá segja að innan um væri fólk sem væri þarna óvart og ætluðu ekki að mótmæla.

Grein Birnu Þórðardóttur í Mogganum í dag (23.12.2008) er nokkuð góð. Hún er undrandi á því að Kolbrún Bergþórsdóttir sé orðin þreytt á mótmælendum og skemmdarverkum þeirra. Hvernig vill Kolbrún að fólk komi skoðunum sínum á framfæri? Ef ekki er hlustað, er tekið til annarra ráða.

Ég er stoltur af því að hafa mætt á nokkra fundi, en hef þó undanfarið verið allt of latur við það. Þakkir til ykkar sem hafið enn þrek í að halda baráttunni gangandi. Látum það ekki viðgangast að útrásarvíkingarnir einkavæði gróðann en ríkisvæði tapið.

hb


mbl.is Óttast að uppúr sjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Þetta er bara rétt að byrja. Þegar atvinnuleysi fer yfit 10% og fjöldagjaldþrot blasa við fer fólk að láta heyra í sér og flugeldunum sem það ákvað að nota í annað en gamlársfagnað.

Villi Asgeirsson, 23.12.2008 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband